Tengistillingar fyrir myPOS Combo

Svona tengir þú myPOS tæki við SIM-kort:
Ef SIM-kort er þegar í myPOS Combo tækinu tengist það sjálfkrafa við internetið.
Ef söluaðilinn vill nota annað SIM-kort ætti að fylgja skrefunum hér fyrir neðan:

  • SKREF 1: Fjarlægðu bakhlíf tækisins með því að snúa boltanum ofan á hlífinni og fjarlægja rafhlöðuna. Þá ættirðu að sjá hólf fyrir SIM-kort og SAM.
  • SKREF 2: Settu SIM-kortið inn í 1 SIM-kortaraufina (þá sem er framar) og vísaðu gyllta snertifletinum niður. Gættu þess að SIM-kortið sé í 1 SIM-kortaraufinni (þeirri sem er framar). myPOS Go tækið virkar með staðlaðri SIM-kortastærð og ef SIM-kortið er míkró eða nanó ætti að nota SIM-adapter kort.
  • SKREF 3: Sláðu inn PIN-númer SIM-kortsins. Ef farsímakerfið finnst ekki mun myPOS Combo tækið sýna villuskilaboð og tvo valkosti: reyna aftur (X) eða að slá handvirkt inn APN-stillingar (O) netkerfisins. Þegar myPOS Go hefur tengst farsímakerfinu mun tækið prófa tenginguna við myPOS kerfið. Ef prófið heppnast birtist virkjunarskjárinn, en ef prófið heppnast ekki munu villuskilaboð birtast á skjá myPOS Go tækisins.

Svona tengir þú myPOS Combo tæki við Wi-Fi:

  • SKREF 1: Veldu “Wi-Fi” úr TENGINGARLEIÐ valmyndinni með því að ýta á (1). Tækið mun skanna eftir fáanlegum Wi-Fi tengingum í næsta nágrenni og mun sýna lista með nöfnum þeirra á skjánum.
  • SKREF 2: Finndu Wi-Fi tenginguna og veldu hana með því að ýta á númer hennar (frá 1 upp í 6). Ef það eru fleiri en 6 fáanlegar tengingar á listanum, farðu á næstu síðu á listanum með því að ýta á STILLINGAR. Ef Wi-Fi tengingin finnst ekki á listanum, ýttu á (X) og tækið mun athuga aftur fáanlegar Wi-Fi tengingar. Gakktu úr skugga um að tækið sé í færi við tenginguna.
  • SKREF 3: Ef lykilorð þarf til að tengjast við Wi-Fi mun tækið sýna Wi-Fi lykilorðaskjáinn til að stimpla inn lykilorðið. Ef lykilorðið inniheldur tölustafi, ýttu á viðeigandi lykil. Ef það inniheldur bókstafi eða önnur tákn, ýttu á viðeigandi lykil og svo á F2 eins oft og þarf þar til réttur bókstafur kemur fram. Ef mistök eru gerð, ýttu á (>) til að eyða síðustu færslu. Þegar lykilorð hefur verið stimplað inn, ýttu á (O) til þess að klára aðgerðina.

Þegar tækið hefur tengst við Wi-Fi tengingu mun það gera prófun á tengingunni við myPOS kerfi. Ef tengingarprófunin heppnast ekki mun tækið sýna villumeldingu. Athugaðu ef Wi-Fi tengingin virkar og endurtaktu skrefin.

 

https://www.mypos.com/pdf/recources/myPOS-Combo-Get-Started-en.pdf -

https://www.mypos.com/pdf/recources/activation-guide-en.pdf?3 

https://www.mypos.com/pdf/recources/myPOS-Combo-TechSheets-en.pdf?1

https://www.mypos.com/pdf/recources/myPOS-Combo-UserGuide-en.pdf 

Var þessi grein gagnleg?

Finnurðu ekki það sem þú leitar að?