Hvers vegna er færslunni minni hafnað?

Hvers vegna er færslunni minni hafnað?

Færslum með viðskiptakorti er hafnað af nokkrum ástæðum:

1. Öryggisstillingar korts
myPOS-kortið gæti verið læst frá því að gera ákveðnar færslur af öryggisástæðum. Til að skoða öryggisstillingar kortsins:

Skráðu þig inn á myPOS-reikninginn.
Farðu í flipann „Kort“.
Veldu viðeigandi kort og athugaðu hlutann „Stillingar“.
2. Færslumörk
Á myPOS-viðskiptakortinu eru mörk á færsluupphæðum og fjölda færslna. Þessi mörk geta auðveldað þér að stjórna fjármagninu þínu og veita viðbótaröryggi. Til að skoða mörk kortsins:

Skráðu þig inn á myPOS-reikninginn.
Athugaðu hlutann „Mörk“ í neðanmálsgrein hverrar síðu.
3. Rangar kortaupplýsingar
Fyrir færslur á netinu skaltu gæta þess að allar kortaupplýsingar séu rétt slegnar inn. Athugaðu krotanúmerið, gildistímann og öryggiskóðann og reyndu síðan aftur.

4. Fráteknar upphæðir þjónustuaðila
Þegar þú notar leiguþjónustu eða sjálfsafgreiðslustaði getur þjónustuaðili tekið ákveðna upphæð frá á reikningnum þínum. Þessari upphæð er venjulega haldið í 45 daga og síðan sleppt. Ef þú þarft að láta sleppa upphæðinni fyrr getur myPOS-fulltrúi aðstoðað þig, en gæti beðið þig um viðbótargögn.

5. Ekki næg innistæða eða nálgast mörk
Ekki næg innistæða: Gættu þess að hafa nægt fjármagn á reikningnum.
Dagleg eyðslumörk: Þú gætir hafa náð daglegum eyðslumörkum. Þú getur breytt daglegum mörkum í myPOS-farsímaappinu.
6. Virkjun korts
Nýtt kort: Ef þú ert með nýtt kort skaltu vilja það með því að gera fyrst færslu með örgjörva og PIN-númeri.
Útrunnið kort: Athugaðu gildistímann. Ef kortið er útrunnið skaltu biðja um nýtt kort.
7. Skemmt kort
Áþreifanlegar skemmdir á kortinu geta hindrað færslur. Ef kortið er skemmt skaltu hafa samband við kortaveituna og biðja um nýtt kort.

8. Samhæfi við kortavél
Hugsanlega er ekki stuðningur á kortavél söluaðilans við greiðslumátann þinn. Gættu þess að posinn styðji við snertilaus kort eða þá tegund korts sem þú notar.

9. Svindlgreining
Svindlflöggun: Færslur eru hugsanlega flaggaðar ef kortið er notað á óvenjulegum stað eða með óvenjulegum hætti. Hafðu samband við kortaútgefandann til að leysa þetta.
Kreditmörkum náð: Gættu þess að fara ekki yfir kreditmörk á kreditkortinu þínu.
10. Tæknileg eða netkerfisvandamál
Stundum er færslum hafnað vegna netkerfisvandamála eða tæknilegra vandamála með posann. Prófaðu færsluna aftur eða prófaðu annan posa.

Var þessi grein gagnleg?

Finnurðu ekki það sem þú leitar að?