Til að byrja að nota myPOS-reikninginn þinn þarftu að staðfesta auðkenni þitt í myPOS-appinu. Þetta ferli fer fram í símanum þínum og tekur venjulega örfáar mínútur.
Þetta þarftu að hafa
- myPOS-appið í símanum þínum
- Vegabréf í gildi, opinber skilríki, dvalarleyfi eða ökuskírteini
- Góða lýsingu þegar þú tekur myndir
- Stöðuga Wi-Fi tengingu eða farsímagögn
- Hljóðlátan stað þar sem þú getur tekið upp stutt sjálfumyndband í einrúmi
- Við biðjum þig hugsanlega um nýlegt skjal sem sannar heimilisfang þitt
Áður en þú hefst handa
- Notaðu skilríki á upprunalegu, áþreifanlegu sniði
- Ekki nota skjáskot, skannanir eða prentuð eintök
- Gættu þess að allt skjalið sé skýrt og sýnilegt
- Ef við biðjum um sönnun á heimilisfangi verður hún að sýna heimilisfang þitt, ekki vinnustaðar
- Lista yfir gögn sem tekið er við sem sönnun á heimilisfangi er að finna í appinu
Skref til að staðfesta auðkenni þitt
- Skráðu þig inn í myPOS-appið. Ef þú þarft að staðfesta auðkenni þitt sérðu tilkynningu.
- Veldu ríkisfang, skjalagerð og útgáfuland og fylgdu síðan leiðbeiningunum í appinu.
- Ef beðið er um það skaltu gefa aðgang að myndavél, hljóðnema og staðsetningu.
- Taktu mynd af skilríkjunum. Ef það eru tvær hliðar á skjalinu þarftu að taka mynd af bæði fram- og bakhlið þess.
- Ef myndin er óskýr eða ólæsileg biðjum við þig um að taka hana aftur.
- Hladdu upp sönnun á heimilisfangi ef beðið er um það.
- Taktu upp stutt sjálfumyndband með því að fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
- Leggðu upplýsingarnar inn til yfirferðar.
Þetta gerist næst
- Gögnin verða yfirfarin sjálfkrafa. Ef upphleðsla tekst ekki þarftu að fara aftur í gegnum ferlið.
- Þegar gögnin hafa verið send inn sérðu staðfestingu í appinu.
- Ef þú þarft að veita sönnun á heimilisfangi látum við þig vita í appinu, í tölvupósti eða með tilkynningu í snjalltæki.
- Í sumum tilvikum biðjum við um viðbótargögn til að ljúka staðfestingu.
- Þegar allri yfirferð er lokið látum við þig vita ef við þurfum eitthvað fleira.
Hvers vegna þarf ég að staðfesta auðkenni mitt?
Sem eftirlitsskyldur greiðsluþjónustuaðili er myPOS skylt að staðfesta auðkenni allra viðskiptavina áður en við getum virkjað reikning að fullu og hafið greiðsluþjónustu.
Þetta er hluti af lagaskyldum okkar undir reglugerðum gegn peningaþvætti og er ekki hægt að sleppa - https://finance.ec.europa.eu/financial-crime/anti-money-laundering-and-countering-financing-terrorism-eu-level_en
Er þetta ferli öruggt?
Já. Staðfesting auðkennis er í höndum Onfido - https://onfido.com/ , sem er sérfræðiveitandi í staðfestingu auðkenna. Gögnin þín eru dulkóðuð og unnin í samræmi við almennu persónuverndarreglugerðina.
Til að vernda upplýsingar þínar:
- Gögn eru dulkóðuð við sendingu og geymslu
- Staðfestingargögn eru geymd á öruggum þjónum
- Aðgangur er takmarkaður við starfsfólk með heimild
- Öryggiskerfi eru stöðugt undir eftirliti og uppfærð samfellt
Algengar spurningar
Hvað gerist ef ég lýk ekki staðfestingu?
Þú getur enn skráð þig inn og skoðað reikninginn þinn en þú getur ekki tekið við greiðslum fyrr en staðfestingu er lokið
Þurfa aðrir notendur reikningsins að staðfesta auðkenni sitt líka?
Já. Allir með aðgang að greiðslugjörningum á reikningnum þurfa að ljúka staðfestingu á auðkenni sínu.
Hvað gerist ef staðfestingunni er hafnað?
Þú færð tilkynningu í appið með leiðbeiningum um hvað á að gera næst. Ef þig vantar enn aðstoð skaltu hafa samband við þjónustuverið okkar - https://www.mypos.com/is-is/contacts
Þarf ég að hafa myPOS-appið til að fara í gegnum staðfestingarferlið?
Já. Staðfesting á auðkenni fer fram í myPOS-appinu í símanum þínum.
Hvaða gögn þarf ég að hafa sem sönnun á heimilisfangi?
Lista yfir gögn sem tekið er við sem sönnun á heimilisfangi er að finna í appinu.
Má ég nota afrit, skjáskot, skönnun eða útprentað skjal?
Til að staðfesta auðkenni þarftu að nota skjal á upprunalegu, áþreifanlegu sniði. Ef þú þarft að veita sönnun á heimilisfangi geturðu hlaðið upp skjali úr símanum eða mynd af útprentuðu skjali.
Hvað gerist ef upphleðslan tekst ekki?
Ef upphleðsla tekst ekki þarftu að fara aftur í gegnum ferlið.
Hvers vegna þarf ég að taka upp sjálfumyndband?
Við biðjum um sjálfumyndband til að staðfesta að þú sért manneskjan á skilríkjunum þínum og að alvöru manneskja sé að ljúka staðfestingunni.
Má ég gera hlé og halda áfram seinna?
Já. Þú getur komið aftur og haldið ferlinu áfram seinna í appinu.
Hversu lengi tekur yfirferðin eftir innsendingu?
Yfirferðir taka venjulega nokkrar mínútur. Við verðum í bandi ef við þurfum frekari upplýsingar.